Tónlistariðkun

Einar Kristjánsson leikur á tvöfalda harmóniku

Þegar Einar (f. 1911)  var ungur lærði hann á svokallaða tvöfalda harmoniku hjá Guðjóni Einarssyni (f. 1886) á Sjóarlandi í Þistilfirði. Guðjón lék á böllum í Þistilfirði um árabil ásamt Jóhannesi Guðmundssyni (f. 1890) í Flögu sem lék á fiðlu. Segja má að Einar hafi tekið við af þeim félögum sem aðalharmonikuleikarinn í byggðarlaginu. Hann mun einkum hafa leikið lög sem hann lærði af þeim Guðjóni, lög sem voru vinsæl í sveitinni og rreyndar vítt um land um og eftir aldamótin 1900 og sum reyndar fram á vora daga. Má þar nefna Kväservalsinn og Bóndabrúðkaupið norska. Sum þessara laga munu harmonikumenn í héraðinu hafa lært af Norðmönnum sem voru með umsvif í kringum síld og síldarverkun á Raufarhöfn. Eftir tilkomu útvarpsins um 1930 varð lagaval smám saman fjölbreyttara og hljóðfærin jafnframt  fullkomnari.

Árið 1946 fluttist Einar til Akureyrar þar sem hann bjó til dauðadags 1996.  Þegar hann kemur til Akureyrar átti hann ekki tvöfalda harmoniku og hefur sennilega ekki talið harmonikuleik sinn neitt sem leggja bæri rækt við. En um 1970 eignaðist hann svo aftur, nánast fyrir tilviljun, samskonar hljóðfæri og hann og Guðjón höfðu leikið á forðum og fór hann þá að rifja upp þessi gömlu danslög sér og öðrum til skemmtunar. Síðar mun honum hafa orðið ljóst að hér voru í raun menningarverðmæti á ferðinni sem rétt væri að varðveita fyrir komandi kynslóðir.  Samningar tókust við SG-hljómplötur og árið 1979 kom út hljómplata með rúmlega 30 lögum þar sem  Einar leikur á tvöfalda harmoniku og Garðar Jakobsson frá Lautum í Reykjadal á fiðlu. Einar leikur einn fyrstu sextán lögin auk valsasyrpu með fimm lögum. Saman leika þeir félagar svo ellefu lög og lokalagið spilar Garðar einn. Heiti laganna eru að mestu komin frá Einari og þá oft kennd við einhvern spilara í héraði eða bæ þar sem lagið hafði slegið í gegn á balli. Hlustendur mega því ekki taka lagaheitin of hátíðlega og vel getur verið að einhver laganna heyrist leikin á útlendum stöðvum – og þá undir allt öðru heiti.

Platan er nú ekki lengur fáanleg í verslunum. Fjölskylda Einars Kristjánssonar gekkst fyrir því að afrita plötuna yfir á geisladisk í tilefni þess að hann hefði orðið níræður þ. 26. október 2001. Upplag geisladisksins er nú þrotið hjá forlaginu. Núna árið 2011 er þessi tónlist orðin aðgengileg á netinu í tilefni þess að hundrað ár eru liðin frá fæðingu Einars.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s




Follow

Get every new post delivered to your Inbox.